Unglingaflokkar – 7.-8. bekkur
7.-8. bekkur
Æfingatími veturinn 2020-2021 er 16:00-17:30 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Á föstudögum er æfingin frá 16:00–17:30.
Iðkendur þurfa ekki annað en hefðbundinn íþróttafatnað og létta íþróttaskó.
Æfingagjald vorannar 2021 fyrir þá sem æfa 3-4x í viku er 47.500,-. Þeir sem æfa 2x í viku greiða 38.000kr. Þeir sem æfa 1x í viku greiða 24.000kr. Innifalið í æfingagjöldum eru keppnisgjöld haustannar og 1.000,- króna iðkendagjald til FRÍ.
Skráning í æfingar fer fram í skráningarkerfi Ármanns á armenningar.felog.is. Mögulegt er að nota frístundakort Reykjavíkurborgar til greiðslu æfingagjalda.
Aðalþjálfari er Hörður Grétar Gunnarsson
Netfang: hordurg@simnet.is
Æfingarnar fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Sjá afstöðumynd að neðan.