7. – 8. bekkur
Frjálsar fyrir 7.-8. bekk
Æfingatími vorönn 2021 er 16:30–18:00, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Föstudaga kl. 16.00-17.30.
Fyrsta æfing vorannar er 5. janúar og stendur önnin út maí.
Lögð er áhersla á fjölþætta þjálfun í æfingum 7. og 8. bekkjar. Krakkarnir kynnast öllum helstu greinum frjálsíþrótta og geta lagt meiri áherslu á greinar sem höfða sérstaklega til þeirra. Krakkarnir fá að kynnast þrek og styrktaræfingum í bland við greinar. Á miðvikudögum er hlaupaæfing með fjölbreyttum úthaldsæfingum.
Iðkendur þurfa ekki annað en hefðbundinn íþróttafatnað og létta íþróttaskó. Þeir sem vilja keppa þurfa gaddaskó og keppnisfatnað.
Æfingagjald vorannar 2021 er 47.500,- krónur fyrir æfingar 3-4x í viku. Þeir sem æfa 2x í viku greiða 38,000,- krónur. Þeir sem æfa 1x í viku greiða 24.000,- krónur. Innifalið í æfingagjöldum eru keppnisgjöld á tiltekin mót haustannar og 1.000,- króna iðkendagjald til FRÍ.
Skráning í æfingar fer fram í skráningarkerfi Ármanns á armenningar.felog.is. Mögulegt er að nota frístundakort Reykjavíkurborgar til greiðslu æfingagjalda.
Netfang: hordurg@simnet.is
Æfingarnar fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Sjá afstöðumynd að neðan.