Ingi Rúnar Kristinsson (Breiðablik) kom öllum og líklega sjálfum sér mest á óvart þegar hann flaug yfir 4,69 metra í stangarstökki á meistaramóti 15-22 ára sem haldið var á Akueyri um helgina og setti íslandsmet í flokki pilta 18 - 19 ára. Fyrir mótið um helgina átti Ingi Rúnar best 4,40 metra í stangarstökki sem hann hafði stokkið á Bikarkeppni FRÍ í sumar.
Flottur árangur náðist í mörgum öðrum greinum þó ekki voru metin fleiri þessa helgina.