Úrslit frá NM 19 ára og yngri

Um helgina eignuðumst við 2 Norðurlandameistara 19 ára og yngri. Aníta Hinriksdóttir úr ÍR gerði sér lítið fyrir og vann 800m hlaupið með tímann 2:08,64mín sem er góð bæting hjá henni. Þetta er sérstaklega frábær árangur því hún er aðeins 15 ára og var því mun yngri en allar hinar sem voru að keppa.
Sveinbjörg Zophaníasdóttir úr USÚ varð Norðurlandameistari í langstökki með stökk uppá 6,08m. Hún náði því að hefna sín fyrir silfrið sem hún náði í fyrra á NM 19 ára og yngri sem haldið var á Akureyri.

Nokkur met féllu, bæði aldursflokkamet og persónuleg met.
Hægt er að sjá nánari fréttir um úrslit mótsins á heimasíðu FRÍ.