NM 19 ára og yngri

kvennaliðið í fyrra á NM 19 ára og yngri

Nú um helgina 3-4.september fer fram Norðurlandamót 19 ára og yngri í Kaupmannahöfn. Keppt verður á Österbro Stadium. Þetta mót var haldið á Íslandi í fyrra, nánar tiltekið á Akureyri og áttum við þar 3 Norðurlandameistara í stangarstökki kvenna, 400m hlaupi kvenna og 400m grindarhlaupi kvenna, einnig áttum við einn silfurhafa í langstökki kvenna sem er frábær árangur. Gaman verður að sjá úrslitin í ár en við nýttum okkur íslenskt veðurfar á mótinu í fyrra.

Við sendum 17 keppendur til leiks og erum með nokkuð ungt lið.

Hér fyrir neðan eru nöfn þeirra sem fara út og í hvaða greinum.

Aníta Hinriksdóttir ÍR; 800m, 1500m og 4x400m
Arna Stefanía Guðmundsdóttir ÍR; 200m, 400m, 4x100m og 4x400m
Arna Ýr Jónsdóttir Breiðablik; stangarstökk
Björg Gunnarsdóttir ÍR; 4x400m
Dóra Hlin Loftsdóttir FH; 100m og 4x100m
Dóróthea Jóhannesdóttir ÍR; þrístökk og 4x100m
María Rún Gunnlaugsdóttir Ármann; 100m grind og spjótkast
Stefanía Valdimarsdóttir Breiðablik; 400m grind og 4x400m
Sveinbjörg Zophoníasdóttir USÚ; langstökk, hástökk, kúla og 4x100m
Hilmar Örn Jónsson ÍR; sleggjukast
Hreinn Heiðar Jóhannsson HSK; hástökk
Ingi Rúnar Kristinsson Breiðablik; stangarstökk, kringlukast, 4x100m og 4x400m
Ívar Kristinn Jasonarson ÍR; 200m, 400m, 4x100m og 4x400m.
Juan Ramon Borges B. ÍR; langstökk, 4x100m og 4x400m
Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA; 100m, 4x100m og 4x400m
Sindri Hrafn Guðmundss Breiðablik; spjótkast
Sindri Lárusson ÍR; kúluvarp

Þjálfarar í ferðinni eru Unnar Vilhjálmsson og Alberto Borges. Fararstjóri er Unnur Sig. Gunnarsdóttir.

Hægt er að fylgjast nánar með á heimasíðu mótsins http://www.njcu20.dk/