Ingi Rúnar
Ingi Rúnar Kristinnsson (Breiðablik) kom öllum og líklega sjálfum sér mest á óvart þegar hann flaug yfir 4,69 metra í stangarstökki á meistaramóti 15-22 ára sem haldið var á Akueyri um helgina og setti íslandsmet í flokki pilta 18 - 19 ára. Fyrir mótið um helgina átti Ingi Rúnar best 4,40 metra í stangarstökki sem hann hafði stokkið á Bikarkeppni FRÍ í sumar.
Flottur árangur náðist í mörgum öðrum greinum þó ekki voru metin fleiri þessa helgina.
Eins og oft vill til á MÍ 15-22 ára þá hafa sumir keppendur talsverða yfirburði í sínum aldursflokki og vinna til margra verðlauna. Fjóla Signý Hannesdóttir (HSK) hafði fádæma yfirburði í flokki ungkvenna 20-22 ára og sigraði í hvorki meira né minna en sex greinum, auk þess að hreppa eitt silfur. Arna Stefanía Guðmundsdóttir (ÍR) og Gunnar Ingi Harðarson (ÍR) unnu fimm greinar hvor og Ívar Kristinn Jasonarson (ÍR), Sindri Hrafn Guðmundsson (Breiðablik) og Kolbeinn Höður Gunnarsson unnu fjórar greinar hver.
ÍR hafði enn og aftur yfirburðarsigur í stigakeppni milli félaganna. Þess má geta að næstum þriðjungur keppenda á mótinu komu einmitt frá ÍR, og segja þær tölur mikið um styrk félagsins í frjálsum íþróttum í dag.
Næst á dagskrá hjá mörgum af þessum keppendum er Norðurlandamót 19 ára og yngri sem fer fram í Danmörku næstu helgi.
