Bikarkeppni 15 ára og yngri
Bikarkeppni 15 ára og yngri fór fram á sunnudaginn við ágætis aðstæður í Hafnarfirði. Gríðarlega góð þátttaka var á mótinu en tíu lið voru skráð til leiks og þar af komu fimm lið utan af landi.
Þetta er í fyrsta sinn sem haldin er bikarkeppni fyrir iðkendur 15 ára og yngri en áður fyrr var keppni leyfð þátttakendum 16 ára og yngri.
Lið ÍR sem hefur sigrað í heildarstigakeppninni síðastliðin tvö ár hélt sigurgöngu sinni áfram þriðja árið í röð. ÍR endaði stigakeppnina með 169 stig eða 26,5 stigum fleiri en FH sem endaði í öðru sæti. Sameiginlegt lið UFA/UMSE varð svo í þriðja sæti.
Í piltakeppninni sigraði ÍR örugglega en hjá stúlkunum bar FH sigur úr bítum eftir gríðarlega harða keppni við HSK og ÍR.
Glæsilegur árangur náðist í hinum ýmsu greinum. Dagur Andri Einarsson setti piltamet í flokki 13 ára pilta er hann hljóp 100m á 12,50 sek. Faðir hans Einar Þór Einarsson er sá eini sem á betri tíma skráðan í þessum aldursflokki en sá tími (12,2) var mældur með handtímatöku. Einnig voru sett íslandsmet í 15 ára flokki í 1000m boðhlaupi pilta og stúlkna en í bæði skiptin voru það sveitir ÍR sem áttu þar í hlut. Ekki má gleyma öðrum frábærum afrekum á mótinu. Thea Imani Sturludóttir úr FH kastaði 400gr spjótinu 42,00 m, ÍR-ingurinn Hilmar Örn Jónsson kastaði kringlunni 52,02 metra og 12 ára piltur úr kópavoginum hljóp 1500m á 4:51,91.
Úrslit á þessu móti eru einstaklega svipuð úrslitum frá Bikarkeppni FRÍ sem haldin var helgina á undan, þar sem ÍR sigraði einnig. Hinsvegar er ekki svipur né sjón að sjá lið Fjörmanns, Fjölnir er ekki með lið skráð til keppni og Ármann vermir botnsætið. Ánægjulegra er hvað lið frá Norðurlandi koma sterk út úr keppninni en lið þaðan eru í þrem af sjö efstu sætunum.
