Englandsvíkingar
Snorri Sigurðsson og Ólafur Konráð Albertsson héldu til London í keppnisferð í vikunni. Þeir kepptu á tveimur mótum, Snorri keppti í tvisar í 800m meðan Ólafur keppti í 800 og síðan 1500m á seinna mótinu.
Snorri stóð sig mjög vel og bætti sinn besta árangur og hljóp á 1:53.02sek á fyrra mótinu sem að er 6 brota bæting utanhúss. Seinna mótinu hljóp hann á 1:54.4sek.
Ólafur átti ekki alveg eins góða daga, hljóp 800m á 1:58 og 1500m á 4:05. Gera má ráð fyrir því að Snorri keppi þá í 800m um helgina á Bikarkeppni FRÍ. Þar verður gaman að sjá hann takast á við Bjartmar Örnuson (Norðurland) og Kristinn Þór Kristinsson (HSK)
