Óli Tómas Freysson í hörku formi
Óli Tómas keppti um helgina á Amsterdam Open mótinu í Hollandi. Hann hljóp 200m á 21,79 sek (-1.1) sem er bæting um 6 brot og jafnframt besti tími ársins. Einnig tók hann þátt í 100m hlaupi og hljóp á 11,12 sek en þar var ágætis mótvindur uppá 2.7 m/sek.
Það er greinilegt að Óli Tómas er í hörku standi og verður gaman að sjá hvað hann gerir um helgina þegar Bikarkeppni FRÍ fer fram. Hans helsti keppinautur þar verður án efa Sveinn Elías, en þeir unnu sitthvora greinina (100/200) á nýliðnu Meistaramót Íslands.
