Fjóla Signý

19 Feb 2012 - 12:50

ég var alltaf á leiðinni að blogga í vikunni.. en allt kom fyrir ekki og ekkert blogg er búið að koma um meistaramótið .. Nú er Bikarmótið líka búið og ég sit hér á Arlanda flugvellinum að blogga á meðan ég bíð eftir lestinni.. 

Síðustu helgi þegar ég keppti í meistaramóti Íslands.. keppti ég í 60m, 60m grind, 200m, hástökki og boðhlaupi.. Ég byrjaði á að bæta mig í 60m, hljóp á 8,13, átti áður 8,28.. ég ákvað að sleppa úrslitinum því ég var að keppa í hástökki á sama tíma og komin upp í háar hæðir. Ég sigraði hástökki og stökk 167.. þessi hástökkskeppni var frekar öðruvísi.. ég var ekki nógu stabíl í stökkunum, eða misjöfn.. veit ekki alveg hvað málið var.. en sigurinn staðreynd :)

Daginn eftir keppti ég 2x í grindinni og 2x í 200m.. það eru s.s undanrásir og svo úrslit..og svo boðhlaup..  fyrst hljóp ég 200m.. á tímanum 26,53.. átti áður 26,64.. fór næst í grindarhlaupið.. og þegar ég var að hita upp fyrir það byrjaði ég að sjá e-ð skrítið.. sá svona hvíta flekki (eins og þegar það er búið að taka mynd af manni með flassi).. svo byrjuðu þessir flekkir að aukast og stækka og ég var farin að sjá mjög illa.. Ég fékk mér powerade og banana.. en það hjálpaði ekkert.. þetta varð bara verra og svo byrjaði að koma stjörnur með.. svo var mér eiginlega farið að svima á að labba en sjá eiginlega ekki hvert ég var að labba.. svo var komið að hlaupinu.. ég geri mig klára í blokkunum og horfi alltaf svo undir grindurnar rétt áður en ég hleyp.. nema hvað að það að ég sá engar grindur! Ég hljóp á tímanum 9,08 og var komin í úrslit..

Þá var það úrslit í 200m.. þessar sjóntruflanir urðu verri og stingandi hausverkur var kominn líka.. ég var farin að sjá mjög brenglað þarna.. séstalega svona útundan mér.. það var allt eins og beyglaður spegill .. ég lagðist niður og hélt fyrir augun, tók eina hraðaaukningu fyrir hlaupið.. og hljóp svo á tímanum 26,13 og nýtt HSK-met.. og þriðja sætið fékk ég fyrir það! :) ég fékk mér meira að borða, fór út og fékk mér fríkst loft.. fór í hljótt og dimmt herbergi og hvíldi mig þar í 20-30 mín og brjálaðan hausverk.. svolítið eins og það væri sverð í gegnum hausinn á mér! Eftir hvíldina sá ég aftur eðlilega og var "bara með hausverk" .. hljóp úrslit í 60m grind hljóp á tímanum 8,993.. sem er fyrsta skiptið undir 9sek og nýtt HSK-met.. en á pappírum er tíminn 9,00.. ekki alveg eins flott tala.. og varð í 2. sæti.. 

Síðan var boðhlaupið.. ekki mikið að segja um það.. kláruðum það á sæmilegum tíma og enduðum í 4. sæti.

Sátt við árangurinn og sérstaklega miða við að fá svona mígreniskast.. hef aldrei fengið svona áður og var eiginlega pínu stressuð yfir þessu.. hvað væri eiginlega í gangi..  

 Mér fannst pínu skrítið að keppa ekki meira á mótinu.. venjulegast hefði ég verið í þrístökki og/eða langstökki.. og 400m .. en ég er búin að keppa svo mikið og vildi ekki alveg yfirkeyra mig og vera tilbúin og klár í bikarinn eftir viku.. Ég var eftir á sátt við að keppa ekki í fleiri greinum því mér var e-ð illt í ökklunum og ristunum.. Sem er búið að fara pínu stigvaxandi.. þjálfarinn minn hér úti vildi að ég mundi láta ath. það strax og ég fór í rötgen og það kom allt eðlilega út.. líklegast bara þreyta og bólgur á svæðinu.. 

Bikarkeppnin var svo í gær.. og ég var ekkert smá spennt að keppa eins og allt.. það er svo gaman á bikar! ég var skráð í 400m, hástökk og boðhlaup.. þar sem það má bara keppa í 2 greinum + boðhlaup.. Þessi keppni snýst um liðið í heild, það eru engin verðlaun fyrir að vinna hverja grein heldur aðeins stigahæðsta liðið.. 6 lið keppa og 1. sætið gefið 6 stig og svo fer það niður.. þannig það þarf að pæla mikið í því hvernig sé best að stilla upp liðinu til að fá sem flest stig. Það er ekki svo einfalt að maður keppir bara í sinni grein sem maður er bestur e-ð... hehe.. en jæja.. ég átti að byrja á 400m.. ég var búin að hvíla vel og svo hrikalega tilbúin í þetta hlaup..

Við vorum komnar í blokkirnar þegar við þurfum svo að standa aftur upp.. ég var alveg titrandi að spenning og hugsaði samt að halda ró minni.. vera einbeitt... ekkert rugl.. aftur í blokkirnar.. viðbúnar.. þá heyri ég e-ð pínu oggulítið hljóð og ég kippist aðeins til.. fer ekki neitt eða lyfti ekki fótunum eða neitt.. en dæmt þjófstart.. og þar af leiðandi dæmd úr leik.. ég fékk áfall þegar brautavörðurinn dæmdi þetta.. ég hef ALDREI verið dæmd úr leik í hlaupi.. og þetta mögulega versla keppni til að það gerist.. þetta er svo ömurlegt að það er ekkert hægt að segja við svona..mér leið bara eins og himinn og jörð væru að farast.. ég væri algjörlega búin að bregaðst liðinu mínu.. þau hefði keypt mig heim frá Svíþjóð og svo klúðra ég þessu.. liðið fékk ekkert stig!...ég grenjaði yfir þessu í 10 mín.. og reyndi svo að taka mig saman í andlitinu... 

Það hefði nú verið verra ef ég hefði t.d tognað e-ð í hlaupinu og ekkert geta keppt.. ég átti eftir að keppa í hástökki og boðhlaupi sem ég mundi þá bara mæta enn ferskari í þær greinar.. 

Ég var samt mjööööög stressuð fyrir hástökkinu.. að ég mundi fara að klúðra því.. Ég átti ekkert stórkostlega keppni en skilaði mínu, sigraði hástökkið og liðið fékk 6 stig.. ég fór yfir 166.. sigga þjálfari sagði að horfa á mig hoppa væri bara eins og ég væri að reyna að gera allt rosa vel.. hehe.. enda var ég að reyna það.. ekki klúðra einhverju meiru.. og var alveg grálega nálægt að fara yfir 169... var í raun komin vel yfir þá hæð en hælarnir rétt struku ránna.. 

Kláruðum svo boðhlaupið, sama sveit og á MÍ og vorum 3 sek betri tíma en þá.. sem er mjög gott..

í heildina endaði HSK í 5. sæti.. og líka í stigakeppni karla og kvenna..

Næsta mót á dagskrá er XL-galan í stokkhólmi a fimmtudaginn þar sem ég mun keppa í 400m hlaupi.. og þá verður sko ekkert ansk. þjófstart..  bara gleði :)  

Þetta er höllin sem ég mun keppa í á fimmtudaginn.. áhorfendastúkurnar taka 14.000mans! 

Helga Margrét

15 Feb 2012 - 22:54

 

 

Nú vil ég fara að fá sumar, fara í lautarferð með nesti, spila kriket, fíflast fram á nótt í miðnætursólinni og fá nokkrar frekknur á nebbann. Er hægt að byðja um eitthvað betra? Þó mér finnist veturinn góður þá finnst mér alltaf verið farið að teygjast full mikið úr honum á þessum tíma og það sem verra er að hann getur teygst miklu mun meira.

Það var um daginn að ég kom út, dró djúpt  andann til að fylla lungun af frískandi loftinu og þá fannst mér sem ég finndi örla fyrir örlitlu vori. Ég fann hvernig aukinn orka streymdi og kroppinn og ég hugsaði þá með mér, getur það verið að veturinn fari að taka enda. Nei Guðrún ekki hugsa svona, það á eftir að valda vonbrigðum enn er langt í vorið. Hvað er maður svo sem að vona ? Eru vonir ekki gerðar til þess að bregðast ? Þó ég sé nú nokkuð viss um að vorið komi á endanum þá er það ekki trygging fyrir neinu betra. Eins og segir í ljóðinu “stundum verða vorin vonum manna hörð”. Ég veit ekki……kannski er betra að vona, kannski ekki.

Ég held að ég reyni allavega að gera mér að góðu það sem ég hef nú þegar, það er ótal margt sem hægt er að gleðjast yfir þó ég fari sennilega ekki á ströndina í dag….ekki úr þessu.

Um daginn fékk ég senda litla kveðju frá gamalli vinkonu minni sem hljóðaði svona

Kæra góða Guðrún Gróa. Í vissu um að “hörpusláttur heiðríkjunnar” þagni aldrei hjá þér, færðu einlægar farsældar – gleði óskir á nýju ári.

Þessi litla kveðja gerði mig eitthvað svo ótrúlega glaða og vakti mig til umhugsunar um alla þá litlu hluti sem eru og gerast í kringum mann og geta vakið svo mikla gleði og lífgað upp á annars grámyglulegan hversdaginn en maður gefur engann gaum að þeim e.t.v. bildaður af öllu því neikvæða sem sífellt er verið að hamra á.

Þetta er farið að líkjast kafla í sjálfhálparbók, hvað um það, er ekki málið að reyn að hjálpa sér sjálfur held að flestir aðrir hafi nóg á sinni könnu.

Í hvert skipti sem eitthvað gerir mig leiða, reiða eða pirraða ætla ég að finna tvennt sem geiri mig glaða. Tvær gleðir  á móti einum leiðindum hlýtur að þýða yfirgnæfandi líkur á betra skapi, ef ekki….þá verður bara að hafa það

GG

 

 

Helga Margrét

14 Feb 2012 - 10:03

 

Elsku litli Sibbulingurinn okkar á afmæli í dag, engin tilviljun að hún skuli eigi afmæli á valentínusardaginn. Sibba  er mesta yndi sem fyrir finnst enda þarf ekki annað en líta á hana til að sjá það því það geislar af henni yndisþokkinn.

Það er ekki nóg með það að sibba sé hvers manns hugljúfi heldur er hún ótrúlega klár og fær í flestan sjó og því ekki að undar að hún sé að rúlla upp hjúkkunni í Danmörku. Það er nokkuð vísta að það verður slegist um að láta hana hjúkra sér ;)

Til hamingju með daginn elsku sætasta sibban. Það vildi ég að ég gæti rekið þér rembingskoss í tilefni dagsins og tekið svo eins og tvö þrjú fiðrildaspil yfir góðum kaffibolla en það verður að bíða þar til við hittumst næst. Ég veit að Andri á eftir að dekra við þið í dag og dagurinn verður frábær.

Fjóla Signý

13 Feb 2012 - 20:43

0 0 1 413 2359 Skálpur 19 5 2767 14.0 Normal 0 false false false EN-US JA X-NONE /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:"Table Normal"; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-parent:""; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:Cambria; mso-ascii-font-family:Cambria; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Cambria; mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

0 0 1 413 2359 Skálpur 19 5 2767 14.0 Normal 0 false false false EN-US JA X-NONE /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:"Table Normal"; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-parent:""; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:Cambria; mso-ascii-font-family:Cambria; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Cambria; mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

Ég ætlaði nú að blogga næst um helgina sem leið.. um MÍ og árangurinn og upplifunina í kringum það.. en ég var bara að lenda í mega hrollvekjandi atburð áðan.. og mér liggur bara mikið á að tjá mig um þetta.. 

Það var s.s þannig að Ég er heima í sveitinni.. og ég ákvað að fara út að hjóla með hundinn áðan.. það er alveg svarta myrkur hérna.. þannig ég fór alveg í sjálflýsandi vesti og með gott vasaljós með mér.. og ég var s.s að hjóla veg sem er svona afleggjari og liggur alveg nokkra km.. og svo koma vegir út frá honum að bæjum/húsum..

jæja.. ég hjóla svolítið langt.. stoppa og hlusta á kyrrðina.. heyrist eeekkert... svarta myrkur.. heyrði bara í sjónum sem er ca. 15km í burtu.. og held heima á leið aftur..

svo kem ég að einum afleggjara og þá allt í einu stoppar hundurinn og byrjar að horfa þangað.. hann gerir það oft og pælti ekki meir í því.. en svo byrjar hann að gelta og gelta.. það gerir hann mjög sjaldan.. þannig ég lýsi í áttina og þá sé ég að það er manneskja sem stendur þarna.. svona 10-15m frá okkur.. og ég var á hjólinu og lýsti bara og hjólaði framhjá.. og kallaði á Vin til mín og hann heldur samt áfram að gelta en kemur til mín.. og þá fór ég að hugsa.. bíddu.. stóð manneskjan ekki alveg kyrr?

og stoppaði eftir nokkra metra og lýsti... og jú. manneskjan stóð bara aaaalveg kyrr hreyfði sig ekki.. Það voru ljós af húsum fyrir aftan sem urðu til þess að ég sá útlínurnar á mennekjsunni 110% þegar ég lýsti á hana.. og Vinur heldur áfram að gelta því ég skammaði hann ekkert, hann var samt bara hjá mér.. mér fannt þetta mjög skrítið..

afhverju stendur hún kyrr.. afhverju í ósköpunum er hún ekki með neitt endurskyn eða ljós.. hvernig getur hún séð e-ð.. og ákvað að hjóla þennan veg að rófuhúsinu okkar..(það væri afsökunin ef hún mundi spyrja e-ð) ég þorði því af því að hundurinn var með mér.. og var frekar æstur.. og þegar hundurinn sér að ég sný hjólinu við þá fattar hann að við erum að fara til þessara manneskju og byrjar að þefa..

Þegar ég er búin að snúa hjólinu við og lýsi aftur þá var enginn.. ENGINNN!!!! Hvert fór manneskjan?!?!?!!! Það var engin leið fyrir manneskjuna að fara... og hverfa bara.. nema að hún hafi alveg sprett einhvert en þá hefði ég heyrt það því það var alveg grafarþögn!

meeeega krípí.. svo kem ég bara heim í sjokki.. segi pabba frá þessu.. hringi í systur mína sem býr í næsta húsi segi henni að læsa... og svona 5 mín eftir að ég er komin inn heyri ég að Vinur (hundurinn) er farinn að gelta á e-ð úti.. !!

ég dreif mig fram.. kallaði hann inn og læsti öllu...!!! og nú þori ég ekki að horfa út um gluggana!

Þannig ef það var einhver á ferðinni í sveitinni minni og það var verið að lýsa á hann vasaljósi og hjóla til hans.. vinsamlegast látið mig vita svo ég geti átta mig á hvað/hver þetta var! 

 

 Þetta var svona pínu svipað þessu.. 

Fjóla Signý

9 Feb 2012 - 11:32
Jæja, þá er ég bara á leiðinni til Íslands.. en, en... ég var að koma?!... ég er s.s ekki alveg að átta mig á að ég sé á leiðinni til Íslands.. að ég sé að fara í sund í kvöld með Jóhönnu.. að ég sé að fara að sofa í sveitinni minni í kvöld.. það er ekki leiðinleg tilhugsun.. en held að það sé bara e-ð svo mikið að gera hér úti að ég hafi bara ekki mátt vera að því að hugsa um þetta.. hehe.. Það er alltaf e-ð allan daginn.. það er svo margt að snúast.. margt að gera svona fyrsta mánuðinn.. en held að það sé ekki mikið eftir.. Til dæmis á þriðjudaginn þá var dagurinn svona hjá mér. Vakna kl 7, taka strætó, skóli 8.30-10.. út í lugnet á æfingu (byrjaði 10.30), vá á æfingu til 14.. ( s.s var í 3,5 klst að æfa!).. þá flýtti ég mér aftur út í skóla og reyna að gera verkefni sem ég átti að klára.. það var ekkert sérstaklega vel gert, hehe... næst hljóp ég út í strætó til Borlänge.. þar leigðum við lítinn flutningabíl.. fórum og sóttum slatta af húsgögnum og dóti sem við vorum að fá gefins, fórum og versluðum heimilisdót.. keyrðum til Falun, fórum í Rúmfatalagerinn að kaupa meira dót.. fórum svo með þetta allt í íbúðina.. skiluðum bílnum, tókum strætó heim, borðuðum og ég komst loksins í sturtu kl 22!! (eftir æfinguna).. reyndi svo að læra e-ð þangað til ég sofnaði...zzzzzzzzzz..... 

 

Bílinn sem við leigðum fullur af dóti..

 

Það gekk furðu vel að keyra.. ég hef aldrei keyrt áður í útlöndum.. en var samt pínu stressuð eins og sést á þessu kreisí augnaráði! 

 

Maður ætti ekki að vera í vandræðum með að finna rétta takkann á þessari fjarstýringu!

Henrike og vinkona hennar.. Þessi vinkona hennar var s.s að flytja og gaf okkur bara þvílíkt mikið af dóti!! enginn smá greiði.. elska svona yndislegt fólk, enginn smá greiði sem hún var að gera okkur.. nú er íbúðin orðin mun heimilislegri þökk sé henni!

Annars gengur bara vel að æfa.. Benke segir að það sé mjög mikill munur að sjá mig hlaupa grindarhlaup núna miða við hvernig ég var fyrst þegar ég kom.. (það er nú ekki svo langt síðan ég kom!).. ég var t.d að gera æfingu í gær þar sem hann var að taka tímann á hvað ég er snögg að hlaupa á milli grindanna.. og skv. hefði ég hlaupið undir 9sek ... ég er s.s bara að bíða eftir því að komast undir 9sek.. ég veit alveg ég get það, það er bara þolinmæði og þá kemur þetta.. vonandi um helgina! en þá keppi ég á MÍ á Íslandi :)  

 

Ég keppti sl. helgi í stokkhólmi.. ég náði ekki undir 9sek.. en ég hjóp 9,05.. en mér fannst samt mjög gaman að sjá Íslenska fánann upp á vegg eins og sést á þessari mynd..

Þegar ég keppti á mótinu hér í Falun þá fann ég þessar 2 fréttir sem voru skrifaðar um mig í héraðs- fréttum/blöðum.. þær eru á sænsku en snúast um það að ég hafi unnið grindarhlaupið...hehe.. annars getiði notar google translate ef við viljið skilja þetta frekar :) 

http://www.dt.se/sport/1.4337738-islandska-vann-hacken http://www5.idrottonline.se/GefleIFFIF-Friidrott/Nyheter/Klubbnyheter/FalunlordagTvaklubbrekordavVilma/

 

Ég er komin með minn eigin skáp í höllinni.. það er mjög þæginlegt þá þarf ég ekki alltaf að vera taka með mér 3 pör af skóm og svona.. það er sérstaklega pirrandi því ég tók engan bakpoka með mér út.. er alltaf með þá í poka.. hehe

Benke var mjög ánægður með merkinguna.. að hann hafi skrifað þetta alveg rétt.. allar kommur og allt saman.. svo fór ég inn á skrifstofuna hans að tala um e-ð allt annað.. og þá sá ég að hann copyaði nafnið mitt úr tölvupósti frá mér.. hahaha..

Svona blað fæ ég alltaf í hverri viku.. prógramm fyrir vikuna.. svo er það stundum aðeins breytt og aðlagað.. eins og sést er búið að skrifa inn á og svona..  

Þetta er dæmi um prógramm fyrir eina æfngu..  

Við keyptum svona skrítið Mountain dew.. það bragðaðist eins og nammi.. leit úr eins og þvottarefni.. haha.. Ég ákvað einmitt að ég ætlaði að kaupa e-ð svona sænkt nammi til að taka til Íslands sem ég hef ekki séð heima.. en einhvernvegin gleymdi ég því og þegar ég mundi eftir því þá hafði ég ekki tíma.. ég þurfti að hlaupa í lestina í morgun.. var ekki einu sinni viss um að ég hafði farið í rétta lest.. hún fór af stað meðan ég var ennþá í anddyrinu á lestinni.. hehe.. en það blessaðist allt.. Svo ákvað ég að nýta tímann víst ég var komin svona snemma á völlinn og kaupa sænskt nammi.. það var dýrt.. en fann enga aðra sjoppu á vellinum.. svo tékkaði ég mig inn og þá kom ég í fríhöfninna og þar var fuuuuullt af nammi og mun ódýrara!! og það er nú aldrei neitt ódýrt á flugvöllum þannig hversu dýr var sjoppan sem ég fór í?! pff.. svekk.. ég roðnaði ég var svo pirruð þegar ég áttaði mig á þessu.. því ég keypti alveg slatta! :|

Nú er farið að ganga um borð í vélina.. best að missa ekki af henni.. sjáumst á eftir Ísland! 

 

Fjóla Signý

30 Jan 2012 - 13:58
0 0 1 379 2164 Skálpur 18 5 2538 14.0 Normal 0 false false false EN-US JA X-NONE /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:"Table Normal"; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-parent:""; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:Cambria; mso-ascii-font-family:Cambria; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Cambria; mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

Það er skrítið að við séum bara búin að vera hér í 2 vikur.  Þó það sé ennþá frekar tómlegt í íbúðinni (það er samt alltaf að bætast e-ð dót við) þá er einhvern veginn eins og við séum búin að vera miklu lengur hér. (En ef  ég hugsa ég bý í Svíþjóð.. þá er það e-ð meira skerí en það er í raun J ) Við erum komin ágætlega inn í allt hérna.. Skólinn byrjaður og loksins komin með stundaskrá, farin að kynnast æfingingarfélögun ágætlega og svona.. Við erum reyndar ennþá að lenda í einhverjum strætó ævintýrum, náum alltaf á einhvern átt að misskilja e-ð og endum í einhverri vitleysu.. hehe.. verður þæginlegra þegar við verðum komin með hjól þá verður þetta mun einfaldara, allavega tekur mun minni tíma. Ég veit reyndar ekki alveg hvernig það gengur að hjóla í snjónum/hálkunni.. en það gera það margir hér og tala nú ekki um á Akureyri.. haha.. mér fannst fyndnast þegar lögreglan var búin að biðja fólk að vera ekki á ferðinni að óþörfu á Akureyri og þá sá maður fólk á hjóli.. haha!

Annars eru helstu fréttinar í þessari viku að ég mun taka e-ð af æfingunum með Torbörn Eriksson, sem sér um elitu hópinn og háskólakrakka. Í þeim hópi er t.d Susanna Kallur. Ég mun samt vera á prógrammi hjá Benke og hitta hann eins oft í viku og ég get. Hann ætlar að setja upp prógram þar sem ég verð að æfa 8x í viku.  Það er mjög gott að vera æfa hjá Benke. Hann er mikið að pæla í öllu og sinnir mér vel, mjög áhugasamur og gefur mér mjög mikinn tíma, spjallar við mann um allt. 

 Hann lét mig líka hlaupa á stóra hlaupabrettinu á æfingu um daginn sem ég setti mynd af um daginn.. og versta við þetta hlaupabretti að maður stjórnar harðanum ekkert sjálfur heldur  þjálfarinn.. og Benke sett einhvern hraða á og kíkti svo á mig eftir kannski 5 mín og jók hraðann eða hækkaði hallan e-ð.. Góða við þetta bretti að það er ekkert smá stórt þannig ég hef alveg smá svigrúm til að hlaupa pínu í Essum eins og ég vil oft gera.. og ef maður dettur þá stoppar það strax því að maður er með e-ð svona belti á sér sem er fest í grind fyrir ofan.. pínu eins og maður sé e-ð tilraunadýr.. Benke talaði líka um að gera svona súrefnis-upptöku próf á mér.. það er svona annað hlaupabretti sem hægt er að gera allskonar test.. það verður spennandi :)

Á laugardaginn var ég að keppa á móti hér í Falun í 60m grind og hljóp á 9,04.. ég hefði viljað ná undir 9 en þessi árgangur er samt vel ásættanlegur. Ég er búin að vera pínu lasin/kvef og slöpp í vikunni, ný komin með rúm og ný flutt í annað land. Svo vann ég líka hlaupið og það er aldrei leiðinlegt J Í verðlaun fékk ég gjafabréf í íþróttabúð uppá 150SEK. Verst að ég var að kaupa mér snjóbuxur í sömubúið fyrir viku síðan.. hehe..

Annað sem er að frétta að við erum komin með rúm.. jii það var svo yndislegt að fá rúm! Sérstaklega þar sem síðasta nóttin áður en við fengum rúmið svaf ég eiginlega ekki neitt, mér var svo illt í bakinu og allt óþæginlegt. Það var himneskt að fá að sofa í rúmi J Við keyptum líka glös í gær.. loksins.. þannig þá getum við hætt að drekka allt úr þessum 3 bollum sem við tókum með okkur út.. hehe.. það er ágætis tilbreyting.  Annað ánægjulegt þá hringdi ég stutt heim í gegnum skype.. Hringdi þannig að ég náði að tala við mömmu, pabba, systur mína og börnin hennar.. mjög gaman. Eina skiptið sem ég er búin að heyra í þeim síðan ég fór út.  

Ég er svo að fara að koma á Ísland í næstu viku! ný komin út.. hehe.. en félagið mitt er svo yndælt að það ætlar að kaupa flug fyrir  til Íslands og til baka til þess að ég geti keppt á MÍ og Bikar með þeim.. það verður fjör! 

Það var gott að drekka loksins úr glasi.. prófum e-ð öðruvísi Fanta með fösudagspizzunni.. (þó það sé ekki hægt að kaupa pizzusósu hér þá redduðum við okkur með pasta sósu.. líka hægt að búa til sína eigin..)

Bakaði dýrindis Ostaslaufur.. mjög hentugt að smurosturinn hér er í túpum..

Þegar ég var að fara að keppa á laugardagsmorguninn þá leist mér ekkert á strætóleiðinna sem við tókum.. var alveg viss um að þetta yrði eitt en ævintýrið með stætó.. en ekki alveg til í það þarna.. en strætóinn kom og planið gekk upp.. renydar átti ég að mæta í nafnakall 1 klst áður vissi það ekki.. en Benke reddaði því..:)

Verðlaunin sem ég fékk fyrir að vinna 60m grindarhlaupið :)

Ég og Benke..

Á Sunnudaginn fórum við í göngutúr.. það er svo oft fallegt veður hérna.. sól og logn..

Ég keyri í þessa átt ef ég ætla í IKEA... tekur 1 klst..

Löbbuðum inn í skógin.. sáum enga úlfa í þessari ferð.. hehe

Tréin eru svo há.. ólíkt því sem er á Íslandi!

Ekki vildi ég vera ruglamaðurinn sem sækir ruslið í þessa tunnu!

 

Fjóla Signý

24 Jan 2012 - 22:42

 

Í dag sótti ég um sænska kennitölu og það á að taka um 2 vikur að fá hana. Þá getum við sótt um húsleigubætur, keypt net, fengið sænskan reikning ofl. Ég byrjaði líka í skólanum í dag þar sem ég var í sænsku tíma. Ég er rosa fegin að vera með smá grunn í þessu þar sem margt er mjög líkt og í íslensku og svo búin að læra þýsku, dönsku og ensku.. það hjálpar mikið..

 

 

Ég er s.s í tveim áföngum núna og klára þá í 14. Viku og fer svo í 2 aðra áfanga.. og klára þá í júní.. svona lotukerfi, ég er mjög spennt að prófa það, held að það henti mér mun betur, er sjúklega stressuð í prófum fer alveg í kerfið. Reyndar gekk mér samt vel á prófunum núna. Meðaleinkunin hjá mér á síðasta misseri er 8,2 og var hæðst eða með þeim hæðstu í öllum prófum, get ekki verið ósátt við það J Ég þurfti samt að taka eitt próf aftur. Ég var einmitt lang mest stressuð fyrir það próf, ég var alveg frosin og svo var ég að reyna að telja tölunar á reiknivélinni (stórar og langar talnarunur) en ég var svo sjúklega stressuð og þar af leiðandi sjálfhent að ég gat ekki einu sinni talið með blýpennanum! Haha.. Ég lærði samt alveg laaang mest fyrir þetta próf.. ég fékk 4.5 og mér fannst það rosa leiðinlegt því ég kunni námsefnið mun betur og kennarinn var sjúklega ósanngjarn að leyfa mér ekki að ná. Kannski vert að taka fram að það var 70% fall.

 

Það voru 10 stór reiknidæmi og gerði mikið af rosalegum klaufavillum, en reiknaði meirihlutann rétt (1 bls hvert dæmi) en kom vitlaus tala efsts og því var útkoman ekki rétt.. en ég fékk bara 0 fyrir dæmin því það voru ekki réttar tölur..  Mér fannst það ekki sanngjarnt. Mér fannst líka e-ð svo leiðinlegt að falla.. Mér finnst þessar einkunnir sem maður fær engan vegin segja til um hversu duglegur og hversu vel maður kann efnið. Oft á tíðum eru prófin byggð þannig upp að maður þarf eiginlega að vera heppin að geta fengið hátt, eða kannski e-h sem læra rosa mikið fyrir lokaprófin (páfagaukalærdóm) og muna svo ekkert 2 vikum seinna. Ég var allavega í miklum mótþróa að læra fyrir þetta próf og lærði rosa lítið.. og var bara kærlaus, ekkert stressuð.

 

Sjúkraprófið sem var núna í janúar var svo miklu erfiðara heldur en jólaprófið. Ekki bætti það ástandið að ég svaf eiginlega ekkert nóttina áður af einhverjum ástæðum og var alveg að sofna.. ég keypti magic og gerið mitt besta. Ég fékk 7,5, var hæðst í upptökuprófinu! Og rúmlega 60% fall... Í jólaprófinu var 7 hæðsta einkunn af staðarnemum og svo í fjarnemum var einn með 8 og einn 8,5..  þannig í heildina er ég með 3ju hæðstu einkunn.. þokkalega sátt!

 

Komið nóg af texta.. nú koma myndir.. fyrst frá því ég var í sveitinni í jan (var fyrst núna að láta myndir inn af hinni myndavélinni þannig þar voru líka eldri myndir)

 

haha.. Vinur og Kasper að leika sér.. þeir eru góðir vinir.. en þessi mynd er ekkert rosa vinaleg.. haha

 

Þessi er best! Það er eins og Kasper sé að fljúga e-ð!

Stóra fjölskyldan mín á áramótunum :)

Jón Steinar prófaði að koma á sveitabrennuna..

Flugeldar..

Það var sko mikið skotið upp hjá okkur og í kring.. 

Ég var dugleg að gefa fuglunum í frostinu.. það er e-ð ótrúlega ánægjulegt að gefa þessum greyjum mat.. svo er maður alltaf að ath. hvort það komi einhver fækingur, sem er ekki oft í heimagörðum.. held að mest hafi verið 5 fuglategundir í einu að borða..  

Það snjóaði mikið og rok með og daginn eftir var allt svo stillt of fínt.. stóðst ekki mátið að fara út að mynda smá..  

 ooog núna kemur frá Sverge.. 

Bókunarkerfið fyrir að panta þvottavélar.. og maður kemst ekki inn í aðstöðuna nema að maður eigi pantaðann tíma.. hver einstaklingur getur bara pantað 1x í viku.. en þar sem við erum 2 getum við gert það 2x í viku..  

 

 

Þetta eru alveg riiiisa stórar þvottavélar, svona iðnar-vélar.. og við höfum aðgang að 4 vélum í einu.. 

Tók þess mynd einn morguninn það var svo mikið frost að það myndast svona hrím utan á tréin.. það er mjög flott.. 

 Það er líka ótrúlega fallegt að á kvöldin þegar það er komið slatti frost og ætti eiginlega að vera þoka en það er svo kalt að það glitrar allt, s.s þokan kristallast einhvern vegin.. ekki snjókoma heldur bara svona eins og það rigni glimmeri..og hér er þetta tré líka svona hrímað.. var ótrúlega fallegt en sést ekki alveg nógu vel á þessari mynd.. 

Svona vinrauður litur eins og þessi hús eru á litinn kallst "Falun-rauður".. Því efni úr kolarnámunni hér var notað í gamladaga til að lita málinguna og varð þá svona á litin.. Elska líka svona lítil og krúttleg hús.. 

 

Ég sá allt í Silkitoppu.. og bara "Jón! Silkitoppa!.. margar!!" það var alveg stór hópur af þeim þarna.. náði samt ekki að taka nógu góða mynd.. en það er víst ekki eins merkilegt að sjá Silkitoppu hér eins og heima.. hehe 

Það er selt Skyr hérna í búðum.. er reyndar ekki búin að smakka það ennþá því það er rosalega dýrt! 

Síðasta sunnudag áttum við að fara með skólanum á framtíðarsafn í Borlänge.. næsti bær við og ég er ma. í tímum í þeim bæ.. þar sem við vorum búin að vera missa af ferðum með skólanum ákvaðum við að vera mega tímaleg og fórum snemma niður í bæ til að taka strætó áfram.. þar var allt lokað.. tók göngutúr.. síðan fórum við til Borlänge og þar var líka allt lokað og átti ekkert einu sinni að opna.. og enginn á ferðinni eins og þessi mynd sýnir.  

 

Við fundum svo mollið í bænum og það var opið.. og McDonalds er þar líka.. þannig það er alveg hægt að eyða góðum tíma þarna..  

 

Mjög flott moll.. en við náðum að sjá mjög lítið af því.. urðum að fara í safnið fljótlega.. við vorum búin að eyða svo miklum tíma í að labba um verslunargötur þar sem allt er lokað.. hér eftir verða sunnudagar hvíldardagar sem maður er ekki að fara að gera e-ð.. nema þá kannski að fara í þetta moll. hehe.. 

Ég að prófa að setjast á stól í framtíðarsafninnu.. settist á naglastól og fannst það ekkert óþæginlegt.. spes.. en þetta var skemmtilegt safn.. á örugglega eftir að fara þangað aftur með einhverjum sem koma í heimsókn.. :)

p.s við fáum rúm á morgun.. get ekki beðið!!! 

 

Pages